Þórey Þráins.

24.12.2007 09:18:08 / torey82

Gleðileg Jól

Gleðileg jól og farsælt komandi ár

Jólakeðja Þórey 


» 2 hafa sagt sína skoðun

28.11.2007 21:38:50 / torey82

Jólin jólin........

Jólin koma brátt :-) get ekki beðið ég er svo mikið jólabarn :-)

En allavegana er ég bara á fullu í prófum núna þannig að það er nú ekki frá mörgu að segja ......  Er búin í prófum 10 des og get þá dundað mér í bænum í viku en svo fer ég að vinna í búðini hjá Rabba fram að jólum... Vantar einhverja vana kassapíu eins og mig ;-) hehe

Emilía Karítas fékk sreptocooca um daginn og fór á pensilín í 10 daga og svo þegar að hún var búin með þann skamt var hún komin með svo ljótan hósta að ég fór með hana til læknis og hann vildi senda mig með hana í myndatöku og viti menn....... LUNGNABÓLGA takk fyrir!!!!! jájá litla dúllan mín var komin með lungabólgu og að gefa börnum meðal í meira en 2 vikur er ekki það skemmtilegasta stríð sem að ég geri.... ;-)

En þetta er nú allt að koma núna og hún er öll að hressast farin á leikskólann og sona :-)

Jæja þetta er komið ágætt núna þið vitið allavegana af mér ;-)

Skrifa eftir prófin aftur....

Ykkar elskulega Þórey :-) 


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.10.2007 22:26:16 / torey82

Jæja!!

Jæja gott fólk komin tími á smá update á því hvað sé að gerast í mínu lífi þessa stundina

Ég er bara á fullu í skólanum alla daga, Emilía er rosalega ánægð á leikskólanum og stendur sig rosalega vel og konurnar eru alveg rosaelga ánægðar með hana ( enda ekki annað hægt hún er svo yndisleg ) og Rabbi er alltaf í vinnuni eins og bara gengur og gerist. Hann var nú reyndar að koma heim frá Svíðþjóð í gær þar sem að hann þurfti að fara með vinnuni á einhvern fund en var nú bara í 3 daga :-)

Við skötuhjúin erum að fara í sólina á Spáni á sunnudaginn og ég get ekki beðið eftir að komast í alminnilegt veður því að þetta veður á þessu landi er að gera mig brjálaða. Það er endalaust rigning hérna og þunglyndisveður að maður nennir varla framúr á morgnana. En þetta verður voðalega notalegt það erfiðasta verður að þurfa að kveðja Emilíu í heila viku!!!!!! JÁ ég veit ég hef aldrei skilið hana eftir meira en eina nótt!!!!! Vona bara að hún taki sem minnst eftir því en ég veit að hún verður nú í góðu yfirlæti og dekri hjá mömmu og pabba :-)

Við erum s.s að fara í golfferð þannig að þetta er nú ekki bara afslöppun því að það eru víst golfmót alla dagana sem að við verðum þarna nema 1 dag þannig að það verður nóg af labbi og nóg af fólki til að horfa á mig gera mig að fífli því að ég er nú ekki það góð sko ;-) hehe sjáum til hvernig þetta endar allt saman :-) en þetta verður bara gaman... fólk verður bara að hafa smá þolinmæði þegar að ég er að slá ;-)

Jæja þetta er komið gott í bili ætla að fara að hugsa um sólina á Spáni :-)

Adios

Þórey 


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.09.2007 13:17:48 / torey82

Ég

- sit heima í tölvuni og er búin að vera að læra síðan rúmlega 8 í morgun!!!

- á eftir að redda módeli í förðun fyrir þriðjudaginn!!!! ( endilega látið mig vita ef að þið getið komið!! )

- er alltaf í skólanum og brjálað að gera!!

- er svo stolt af Emilíu minni því að hún var svo dugleg í aðlöguninni í leikskólanum

- öfunda Kristínu og Stefán sem að eru á Spáni núna í 30 stiga hita!!!

- er sjálf að fara til spánar í október ;-) hlakka geggjað til :-)

- er stolt af Sonný systir og stelpunum í Fjölni, þær eru búnar að standa sig vel í sumar í boltanum :-) 

- fór að hitta stelpurnar í skólanum í gærkvöldi og fékk að knúsast með litla prinsinn hennar Bjarkar :-) hann er svo mikið krútt :-) Held að það hafi verið eitthver mömulykt af mér honum leið svo vel ;-)

Jæja ætla að fara að taka úr þvottavélini :-)

Kv.Þórey

 

Sonný snilli í markinu :-) 


» 1 hafa sagt sína skoðun

31.08.2007 14:28:50 / torey82

Dómarar!!!

http://www.fotbolti.net

Finnið viðtalið við Andres um dómarana í kvennaboltanum!!! og lesið hana :-) er síðan 31 ágúst kl:9:57

Loksins kom að því að hann sagði eitthvað í fjölmiðlum hann var greinilega búin að fá nóg og engan að undra.... þessir dómarar í kvennaboltanum ættu að skammast sín!!!

Og svo að allt sjóði nú ekki uppúr í kvöld er búið að fá Kristinn Jakobsson til að dæma Valur-Breiðablik..... meira ruglið!!

Kv.Þórey

p.s lesið fréttina hún er áhugaverð!


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.08.2007 20:59:53 / torey82

Skóli......

já kæru lesendur eins og fyrirsögnin segir til um þá er lífið komið í sinn vanagang. Ég er byrjuð í skolanum, Emilía er hjá mömmu þangað til að hún byrar á leikskólanum og Rabbi er í vinnuni :-)

Annars var nú voðalega gott að komast í skolann aftur þó svo að ég hafi ekki verið að nenna að byrja í skolanum svona rétt áður en hann byrjaði :-) hitta allar stelpurar aftur og svaka stuð... því að það er alltaf nóg að gera í skolanum og þegar að þessi önn er búin þá á ég bara eina önn eftir :-) jebb lásuð rétt þetta er alveg að verða búið :-) ( það er að segja ef að ég næ öllu núna á þessari önn :-) )

Emilía er að byrja í aðlögun á leikskólanum á mánudaginn og ég get aldrei farið með henni :-( mér finnst það alveg ömurlegt að geta ekki verið með barnið mitt í aðlögun á leikskolanum því að það er svo vont fyrir mig að missa úr verklegu tímana í skolanum sem að eru oftast á morgnana en Rabbi ætlar að taka sér frí í vinnuni í næstu viku til að fara með hana þannig að það verður í lagi :-)

Ef að þið viljið komast í dekur á daginn og skrópa í vinnuna og skólann fyrir mig af því að ég er svo æðisleg þá endilega látið mig vita því að bráðum verðum við með módel í öllum tímum og er ekki að skilja hvernig það á að vera hægt að redda fólki í þetta á miðjum degi!!!!!

Vantar módel í smokey förðun á þriðjudaginn klukkan 13:20 - 16:00 :-):-):-)

Jæja komið fínt í bili :-)

Kv.Þórey 


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.08.2007 18:17:11 / torey82

Stórleikur.....

 


Stórleikur á morgun á Keflavíkurvelli klukkan 18:00
Allir að mæta á völlinn og styðja stelpurnar og öskra "ÁFRAM FJÖLNIR"
Kv.Þórey

 

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.08.2007 10:59:44 / torey82

Sumarið búið.....

Jæja eins og titillinn gefur til kynna þá er sumarið að verða búið.... skólinn er að byrja eftir 2 vikur!!!! allt of stutt þangað til og Emilía Karítas LITLA stelpan mín er að byrja á leikskóla takk fyrir!!!

Sonný systir var að spila í gær við KR í fótbolta og stóð hún sig ekkert smá vel og varði og varði og bjargaði oft en því miður þá unnu þær gráu í vesturbænum leikinn..... og eins og í síðasta leik þá var dómarinn í aðalhlutverki í fyrri hálfleik og var afburða slakur!!! Gaf vítaspyrnu og svona skemmtilegt!!! En Fjölnisstelpur stóðu sig mjög vel og hefðu með smá heppni í lokin getað jafnað leikinn þegar að þær fengu aukaspyrnu sem að fór rétt yfr markið!!!

En annars er ekkert mikið að frétta af okkur við mæðgur erum bara heima og förum reglulega í sund og út að labba og sona og hver veit nema við kíkjum við hjá Björk og litla snúllanum í heimleiðini á eftir þegar að við förum í göngutúr :-)

En jæja ætla að fara að finna sunddótið og sona

Kv.Þórey

 

Olgi skorar úr vítaspyrnuni sem að hún fékk gefins í fyrri hálfleik!!

Sonný snillingurinn minn í markinu ;-) 


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.07.2007 14:41:37 / torey82

Gleðilegt sumar.....

Já það má með sanni segja að sumarið sé búið að vera frábært það sem að búið er af því allavegana. Æðiselgt veður buið að vera og nóg að gera hjá okkur.

Við familían fórum til Svíðþjóðar 19 júní og vorum í viku að heimsækja tengdó..... veðrið var mjög gott allan tímann og gerðum við margt skemmtilegt. Ég, Rabbi og Emilía tókum einn dag í það að fara yfir til Köben og fórum í dýragarðinn og skoðuðum öll dýrin með Emilíu sem að fannst það nú ekki leiðinlegt og það fyndna var að hún var hræddust við beljurnar af öllum dýrunum henni fannst sko fíllinn og gíraffinn ekkert stór en beljan fannst henni stór og ekki skemmtileg... híhí..... svo var mjög erfitt að ná henni út úr girðingunni hjá kiðlingunum því að þar mátti fara inn fyrir og klappa þeim og það fannst henni nú ekki leiðinlegt og vildi helst bara vera hjá kibbakibb :-) algjör dúlla :-) En eftir að við vorum búin að vera í dýragarðinum tókum við lestina yfir í Fields og þar var verslað dálítið en ekkert svakalega mikið við vorum nú bara þar í 2 klst sem að er nú ekki nógur tími í Fields fyrir mig sko en Rabba fannst það 2 tímum of mikið!!! Hann HATAR að labba í búðum!!! Vægast sagt....... En þetta var alveg yndislegtur dagur og enduðum við svo á því að fá okkur að pizzu í matinn á einum veitingastaðnum þar... Emilía vildi pizzu og fékk hún að ráða núna ;-) Við tókums svo bara lestina aftur yfir til Svíðþjóðar um kvöldið.... mjög gaman :-)

En við vorum í 1 viku ég og Emilía en við komum heim 26 júní en Rabbi var lengur því að hann var að fara á einhvern fund fyrir vinnuna og kom ekki heim fyrr en á laugardeginum var 4 dögum lengur en við. En við komum sannarlega heim í spánarveður því að það var bara yfir 20 stiga hiti og sól allan tímann eftir að við komum heim á meðan að Rabbi var í Svíðþjóð í rigningu ;-) híhí mér fannst það bara fyndið að vera brúnni en hann eftir að vera búin að vera á íslandi á meðan að hann var í útlöndum ;-)

Mamma, pabbi, Kristjana og Albert komu svo heim viku á eftir okkur en þau voru á Spáni og auðvitað alveg kaffibrún og sæt :-) var rosalega gott að sjá þau aftur voru búin að vera í 2 vikur úti og var búið að vera rosalega gaman hjá þeim.....

Við mæðgur erum búnar að vera duglegar að fara að horfa á Sonný frænku keppa í fótbolta en hún er að spila með Fjölni í Landsbankadeild kvenna og eru þær sko búnar að standa sig heldur betur vel og eru í 4 sæti í deildini núna þegar að komið er smá hlé..... og eru komnar í undanúrslit í VISA bikar kvenna 3 árið í röð!!!! ekkert smá góðar :-) Emilía alveg elskar að fara á fótboltavöllinn og horfa á Sonný spila og situr og segir bara "áfam fölnir" hehe algjör dúlla og í hvert skipti sem að ég keyri framhjá fótboltavellinum þá vill hún bara fara að horfa á Sonný spila... enda stendur hún sig mjög vel í markinu hún Sonný... er mjög stolt af henni :-)

Nú er Kristjana frænka að fara aftur til útlanda en hún er að fara til Svíðþjóðar að keppa með fótboltanum sínum á einhverju móti og verður alveg í 1 viku og eigum við sko eftir að sakna hennar mikið :-(

Rabbi er núna að keppa á meistaramótinu í golfi og er búin að standa sig mjög vel en var reyndar ekki mjög góður í gær og datt niður í 4 sætið en var búin að vera í 2 sæti eftir 2 daga en í dag er síðasti dagurinn og veit ég að hann á eftir að standa sig og rífa sig uppúr þessu og fer sko aftur upp í verðlaunasæti :-) hann er svo góður þessi elska :-)

Jæja er þetta ekki komið gott í bili ætla að fara að vekja dúlluna mína eftir smá stund og fara að drífa mig í sund eða eitthvað erum sko í sundi á hverjum degi við mæðgum..... ógisslega duglegar :-)

Njótið sólarinnar á meðan hún er :-)

Kv.Þórey


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.06.2007 10:18:55 / torey82

Emilía Karítas 2 ára!!!

Litla gullið mitt er 2 ára í dag..... svei mér þá ég man ennþá eftir verkjunum fyrir 2 árum síðan ;-) þetta er búið að vera ekkert smá fljótt að líða ég verð farin að ferma áður en að ég veit af ;-)

Kveðja Stoltasta mamma í heimi :-)


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.06.2007 16:23:05 / torey82

Brúðkaup Kristínar & Stefáns

Já ég fór í brúðkaup til þeirra Kristínar og Stefáns á laugardaginn og það var alveg yndislegur dagur og gaman að fá að eyða honum með þeim. Ég fór til Kristínar um klukkan 10 um morguninn og var hjá henni allan daginn og málaði hana og svona og hún var svo falleg og yndisleg þegar að hún var komin í kjólinn og allt og það var sko ekki langt í tárin hjá mér og kollu þegar að við vorum að taka myndirnar :-)

Giftingin var í fríkirkjunni í Hafnarfirði og fór hún mjög vel fram og sungu Halla Vilhjálmsdóttir og Þorvaldur Davíð vinir Kristínar lagið Paradís og ég er ekki frá því að það hafi fallið tár hjá ansi mörgum sem að voru í kirkjunni þetta var svo fallegt og sérstaklega þegar að mér var litið á Kristínu sem að þurfti að berjast við tárin upp við altarið..... og svo söng Halla annað lag ein sem að var ekki síðra. Eftir kirkjuna var farið í sal í skipholtinu þar sem að beið okkar yndislegt hlaðborð af mat og svo kaffi og kökur á eftir ... alveg frábært í alla staði :-)

Var yndislegt að fá að eyða öllum deginum með þér elsku Kristín mín og gangi ykkur vel í framtíðinni :-)

Hér að neðan er linkur á youtube þar sem að Kristín syngur lag sem að hún samdi þegar að hún og Stefán voru nýbúin að kynnast..... syngur ekkert smá vel þessi elska :-)

Kv.Þórey

http://www.youtube.com/watch?v=UWynTXUrSOA


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.05.2007 15:49:40 / torey82

Ég & dúllan mín :-)


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.05.2007 21:11:04 / torey82

Smá færsla........

Ekkert rosalega mikið að frétta af mér en þetta er það helsta.......

- aðeins 9 dagar í brúðkaupið hjá Kristínu og Stefáni

- 13 dagar þangað til að Emilía mín verður 2 ÁRA!!!!!

- Gekk mjög vel í skólanum og var bara með 8 og 9 og svo eina 7 :-)

- ætlum að skella okkur til Svíðþjóðar í júní í 1 viku að heimsækja tengdó.....  verður gott að komast í sólina loksins :-)

- brjálað að gera hjá rabba í vinnuni og þegar að veður er gott er farið beint í golf þannig að hann er nú ekki mikið heima :-( golfseasonið er byrjað!!

- ný ríkisstjórn er komin mér til mikillar ánægju

- ég er að bera út moggann á morgnana og er svo bara að dúlla mér með múslunni minni á daginn í sundi og sona í góða veðrinu erum orðnir algjörir sundgarpar :-)

- fer í 2 stúdentaveislur um helgina

- ég er að verða 25 ára!!!!!!

hef ekkert meira að segja.......... Góða helgi gott fólk

Kv.Þórey 


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.05.2007 09:06:54 / torey82

Kosningar!!

Hvernig datt fólki í hug að leyfa þessari ríkisstjórn að halda sæti sínu á þingi!!!! Var þetta ekki komið got!!! Mér fannst sko alveg kominn tími til að breyta aðeins til í landinu í staðinn fyrir að hafa sömu ríkisstjórn og er búin að vera í 16 ár!!! Vona samt að skólafólkið hafi kosið rétt og sett X við rautt!!!

» 1 hafa sagt sína skoðun

16.02.2007 22:39:16 / torey82

Er ekki komin tími.....

..... á nýja færslu :-)

- Allt gott að frétta af mér og mínum

- Er á fullu í skólanum, Rabbi alltaf að vinna og Emilía alltaf hjá mömmu

- Sesselja Ósk krúttibolla varð 1 ÁRS 4 fenrúar :-)

- Annars gerum við voða lítið annað en að vinna, skóli, sofa og éta þannig að það er ekkert svakalega mikið að frétta frá mér sko.....

- Brúðkaup í vændum..... NEI ekki hjá mér sko heldur eru Kristín og Stefán að fara að gifta sig í byrjun júní og það verður sko brjálað stuð

- Ég tek Kristínu í brúðarförðun fljótlega í skólanum og kannski byrjar fiðringurinn þá snemma ;-) ( Takk fyrir að koma dúllan mín :-) )

- Afmæli hjá Sesselju á sunnudaginn, kökur og nammi namm :-)

Jæja er komið ágætt hef sko EKKERT að segja.....

Þórey

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 24 desember
RSS tengill
Dagsetning
22. mars 2010
�?g og Rabbi til Spánar
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 897 dögum
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti
Leitarbox